KVENNABLAÐIÐ

Kim vill fá skilnað frá Kanye og fullt forræði yfir börnunum

Gula pressan logar þessa dagana vegna frétta um að Kim Kardashian sé búin að gefast upp á Kanye West. Hefur hún staðið við hlið hans síðan í veikindum hans og áfallinu sem hann varð fyrir í nóvember en hann dvaldist á UCLA Medical Center spítalanum í 10 daga.

Kim er sögð óánægð í hjónabandinu eins og UsWeekly fullyrti á dögunum og að hún vilji fá skilnað sem fyrst. Hún ku einnig vera að undirbúa málssókn til að fá fullt forræði yfir börnunum North og Saint.

Auglýsing

Einnig er sagt að Kanye búin ekki með Kim í höllinni þeirra í Bel-Air í Kaliforníuríki. Sagt er að hann dveljist í leiguíbúð í Los Angeles, þrátt fyrir að talsmenn hann hafi neitað því.

Höllin í Bel-Air
Höllin í Bel-Air

UsWeekly segir að Kim sé gallhörð á því að fá skilnað og hún sé algerlega ákveðin í að hún vilji ekki vera gift Kanye. Tímasetningin gæti ekki verið verri þó. Kim verður að gefa öllu tíma áður en hún gerir eitthvað: „Kim þykir vænt um Kanye og er fegin að hann sé að fá þá hjálp sem hann þarf. En henni líður eins og hún sé fangi,“ segir ónafngreindur heimildamaður.

Einnig segir hann að Kim muni ekki gera neitt fyrr en Kanye sé að fullu batnað eftir ófarir síðustu vikna: „Þetta er búið að vera algert helvíti fyrir þau. Óbærilegt helvíti. Þau rífast allan tímann.“

Auglýsing
Parið með Saint og West
Parið með Saint og West

E! sjónvarpsstöðin sem framleiðir þættina Keeping up with the Kardashians segir að þetta sé allt tóm vitleysa – þau búi saman og þau séu ekki að fara að skilja því þau séu mjög ástfangin.

Kim með besta vini sínum Jonathan Cheban sem heldur úti síðunni hennar þessa dagana. Hann hefur sagt við fjölmiðla að Kim „hafi það ekki svo gott" eftir ránið í París
Kim með besta vini sínum Jonathan Cheban sem heldur úti síðunni hennar þessa dagana. Hann hefur sagt við fjölmiðla að Kim „hafi það ekki svo gott“ eftir ránið í París

 

Kim er sögð vilja halda börnunum North, 3ja, og Saint, 1 árs, frá Kanye eins og staðan er í dag. Saint átti afmæli og vildi hún ekki hafa Kanye nálægt. Afmælisboðið var ekki stórt, en mikið var um blöðrur og stór kaka var borin fram.

Kanye vill halda áfram að hanna föt fyrir Adidas en Kim hefur verið að halda honum frá því. Hvað verður veit nú enginn…en þið getið treyst á fréttir frá málinu á Sykri!