KVENNABLAÐIÐ

Saint West er orðinn eins árs: Sjáðu fágætar myndir af drengnum

Sonur Kim Kardashian og Kanye West er eins árs gamall. Til að fagna afmælinu birti fjölskyldan ýmsar áður óséðar myndir af þessum fallega dreng. Kim hefur enn ekki snúið aftur á samfélagsmiðlana eftir ránið í París og spítalainnlögn eiginmannsins hefur væntanlega fælt hana enn meira frá því að vera í sviðsljósinu.

Vinur Kim, Jonathan Cheban sér nú alfarið um vefsíðu Kim. Í tilefni afmælisins setti hann fallega mynd af Kim og Saint ásamt myndatextanum: „Ég trúi því ekki að fyrsti afmælisdagur Saint er runninn upp! Fólk veit þetta kannski ekki um mig en ég elska börn, LOL.“

a-saint-2

Auglýsing

a-saint1

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!