KVENNABLAÐIÐ

Árið 2017 má Katie Holmes segja allt sem hún vill um skilnaðinn við Tom Cruise

Ef fréttastofan Radar hefur rétt fyrir sér hefur þögn leikkonunnar Katie Holmes verið samningsbundin: Hún má því frá með árinu 2017 segja það sem hún vill um Tom Cruise (fyrrverandi eiginmann), Vísindakirkjuna eða nýtt samband sitt við Jamie Foxx, eins og Sykur hefur greint frá.

Auglýsing

Smakvæmt skilnaðarsáttmála sem á að hafa verið gerður milli Holmes og Cruise á hún að hafa skrifað undir að hún megi ekki hitta aðra menn þar til ársins 2017. Hún má ekki niðurlægja hann með því að tala um einkalíf þeirra eða Vísindakirkjuna. Hún má heldur ekki hitta nýjan mann þar til árið 2017 rennur upp. Samkvæmt Radar má Katie heldur ekki leyfa dóttur þeirra, Suri, hitta aðra menn en Tom og hafi hún verið svo örvæntingarfull að losna úr hjónabandinu að hún skrifaði undir alla þessa skilmála.

Auglýsing

Fékk Katie því 4,8 milljónir dala til að framfleyta sér og Suri og aðrar 5 milljónir dala fyrir sig sjálfa.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!