KVENNABLAÐIÐ

Leynilegt samband Katie Holmes og Jamie Foxx hefur varað í þrjú ár!

Það lítur út fyrir að leikkonan Katie Holmes og leikarinn Jamie Foxx hafi ákveðið að þau þyrftu ekki að halda sambandinu leyndu lengur því hin 37 ára leikkona sást fagna kærastanum á tónleikum með Barbra Streisand þann 13. ágúst síðastliðinn.

Áhorfandi baksviðs greinir svo frá: „Þau fóru úr búningsklefnum með nokkurra mínútna millibili en hún var þar inni eftir tónleikana.“ Us Weekly greinir frá þessu.

Auglýsing

Vinur parsins segir að þau hafi náð ótrúlega vel að leyna sambandi sínu sem hófst fyrir um þremur árum. Hafa þau aldrei tjáð sig um sambandið opinberlega, þrátt fyrir að sögusagnir hafi breiðst út þar að lútandi.

„Jamie er einhver sem hún getur treyst og skemmt sér með. Hún fær allt hjá Jamie sem hún fékk ekki með Tom [Cruise]“

 

jamie og barb
Jamie syngur með Barbra (Mynd: Getty)

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!