KVENNABLAÐIÐ

Matseðill – Svona margar kaloríur innbyrðir Khloé Kardashian á hverjum degi!

Khloé Kardashian fer á fætur klukkan fimm að morgni, fær sér lútsterkan kaffibolla þegar hún opnar augun og æfir alltaf á fastandi maga. Þá borðar hún heilar átta máltíðir á sólarhring, neitar sér ekki um kökusneið og hefur, með þessu móti, mótað líkamann og náð mögnuðum árangri í baráttunni við bölvuð aukakílóin.

„Refsilíkami besta hefndin“ – Khloé Kardashian kennir að jafna metin

Þetta kemur meðal annars fram í nýrri bók raunveruleikastjörnunnar, sem ber heitið Strong Looks Better Naked, en í kafla sem ber heitið The Joy of Cooking [Ánægjan sem fólgin er í eldamennsku – ísl.þýð. innsk.blm]  fer Khloé ofan í saumana á þeim kaloríufjölda sem hún innbyrðir í fæðuátakinu og hvenær dags hún borðar.

Svona lítur dæmigerður matseðill Khloé út:

05:00 – Khloé fer á fætur kl. 5 að morgni og fær sér stórt vatnsglas með lútsterku, svörtu kaffi.

6:00 – Mætt í ræktina og rífur í lóðin, en hún æfir á fastandi maga.

8:00 – Í morgunverð fær Khloé sér annað stórt vatnsglas, glútenlausan hafragraut og prótein-hristing.

11:00 –  Eitt ágætt epli með hnetusmjöri eða ávextir og hnetur.  

13:00 – Kjúklingasalat af kínverskum hætti.

15:00 – Miðdegissnarl! Heimalagaður hummus, niðurskorið grænmeti, afhýddar belgbaunir (Edamame) og annað stórt vatnsglas (blandað með ferskum ávöxtum).  

19:00 – Í kvöldverð fær Khloé sér gufusoðið grænmeti og fisk með blómkáls-stöppu, ásamt stóru glasi af vatni.

21:00 – Í lok dagsins fær Khlóe sér skál af ferskum, niðurskornum ávöxtum með hreinni, grískri jógúrt.

Þá segist Khloé einnig sneiða að mestu hjá kolvetnum og mjólkur-afurðum, en trúir því að vatn búi yfir heilandi mætti. Þá drekkur hún gjarna ferskt ávaxta-vatn og geymir iðulega fjórar til fimm gerðir af fersku ávaxta-vatni í kæli. Þá gætir raunveruleikastjarnan þess að eiga alltaf fersk hráefni í samræmi við hverja árstíð; grænmeti og ávexti. Að endingu viðurkennir Khloé fúslega að svindla af og til, ef henni langar í kökusneið, þá lætur hún einstaka bita eftir sér.

Dita Von Teese: „Bull og vitleysa að mittisþjálfar gagnist við megrun“

Forvitnilegur matseðill, skemmtilegt er að sjá hvernig matseðill Khloé er í raun uppbyggður en í nýútkominni bók sinni, Strong Looks Better Naked, er farið betur ofan í saumana á því hvernig Khloé, sem eitt sinn hlaut viðurnefnið FEITA SYSTIRIN fór að því að léttast og ná ótrúlegum árangri í ræktinni.

Bók Khloé, Strong Looks Better Naked, er m.a. fáanleg á Amazon

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!