KVENNABLAÐIÐ

„Refsilíkami besta hefndin“ – Khloe Kardashian kennir að jafna metin

„Sú list að líta vel út er alltaf besta hefndin“, segir Khloe Kardashian í yfirlýsingu sem ætlað er að kynna nýja raunveruleikaseríu sem stjarnan stýrir sjálf. Serían, sem samanstendur af sex þáttum, mun bera heitið Revenge Body og vísar einfaldlega til þeirrar yfirhalningar sem einstaklingar af báðum kynjum undirgangast oft í kjölfar skilnaðar.

Khloé þekkir þyngarstjórnun af eigin raun
Khloé hlaut viðurnefnið feita systirin og mátti þola illkvittinn samanburð við systur sínar

Með öðrum orðum; ekkert er betra mótefni við ástarsorg en algjör yfirhalning og reglubundin heilsurækt sem leiðir til fegurri líkamslögunar, aukins sjálfstrausts og jafnvel glæstari limaburðar. Því hver vill ekki brosa blítt við fyrrverandi, skælbrosandi með perluhvítar tennur og í óaðfinnanlegu líkamsformi, um leið og miðjufingurinn læðist upp á leið út um dyrnar?

quote-i-m-the-ugly-sister-i-m-the-fat-one-i-m-the-transvestite-i-have-had-those-mean-things-khloe-kardashian-88-89-10
Khloé var lögð í grimmt einelti og leið vítiskvalir vegna grimmdar fjölmiðla

Þetta ætti Khloe að kannast við, en raunveruleikastjarnan sleit samvistum sem kunnugt er við eiginmann sinn, Lamar Odom, fyrir ekki löngu síðan og var löngum kölluð feita systirin:

Mér finnst mjög spennandi að fá tækifæri til að leiða þá einstaklinga sem fram koma í raunveruleikaþáttunum gegnum algera líkamlega umbreytingu og ég get ekki beðið þess að sjá hvernig þau stíga fram að lokum, þegar þau afhjúpa allan árangurinn.

khloe-kardashian-fit-complex-2015-gossip
Augljóslega borgar sig að grúska í kistu Khloé og grafa upp heilsuráð

Þeir sem enn ekki skilja út á hvað hugtakið refsilíkami, eða Revenge Body, merkir geta haldið áfram að lesa – en um er að ræða algera líkamlega umbreytingu í kjölfar skilnaðar, atvinnumissis eða skyldra áfalla sem gerir að verkum að viðkomandi nær að jafna metin við fyrrverandi og sýnir þannig fram á hversu mikil mistök það voru að hafna viðkomandi. Einhverjir segja ferðalagið tilgangslaust, meðan aðrir benda á að alltaf sé gott að styrkja líkamann og efla sjálfstraustið, hvað svo sem framtíðin kunni að fela í sér.

khloekardashian-jpg
Allt ætlaði vitlaust að verða þegar Khloé birti þessa mynd skömmu fyrir jól

Eins og fram kemur hér að ofan, mun þáttaröðin samanstanda af sex þáttum sem hver tekur á ferðalagi tveggja einstaklinga sem eru í sárri þörf fyrir líkamlegar umbætur. Hlutverk Khloe er að leiðbeina þeim gegnum ferlið og styðja viðkomandi til aukins heilbrigðis, samhliða því sem þau í sameiningu jafna metin – hver svo sem rótin er að vandanum.

screenshot-i3.mirror.co.uk 2015-12-27 01-19-58
Samkvæmt því er Khloé vill meina er gliturbossi besta hefndin

Ekkert hefur enn verið gefið upp um útgáfudag, en á vef Deadline kemur þó þetta fram:

Í hverjum þætti munu tveir niðurbrotnir einstaklingar öðlast tækifæri til að styrkja líkama sinn, byggja upp sjálfstraustið og þjálfa undir reyndustu einkaþjálfurunum í Hollywood. Viðkomandi munu hitta stílista og glæst förðunarteymi sem Khloe kallar til og þetta allt mun svo leiða til algerrar umbreytingar.

Ekki er langt síðan Khloe gaf út bókina Strong Looks Better Naked en þáttaröðin mun byggð á sambærilegri heimspeki og raunveruleikastjarnan fjallar um í nýútkomnu heilsuriti og því ber ekki á öðru en að guðmóðir brostinna vona og endurfæðingar í kjölfar ástarsorgar sé sprottin fram; sjálf Khloe Kardashian er komin til bjargar.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!