KVENNABLAÐIÐ

Rihanna, Selena Gomez og Weeknd umkringd fáklæddum englum í undirfatnaði frá Victoria Secret

Selena Gomez fetar í fótspor sjálfrar Taylor Swift á sviði undirfatasýningar Victoria Secret nú í desember, en ásamt Selenu stíga þau Rihanna og Weeknd á svið.

Sýningin fer fram þann 8 desember nk. og binda aðdáendur vonir við að Rihanna muni LOKS frumflytja nýja smáskífu af fyrirhuguðu albúmi sínu, ANTI, sem hefur vakið upp mikinn styrr og eftirvæntingu en útgáfudagur hefur ekki ekki verið gefinn upp.

VS-Fashion-Show-1026x684

Sjá einnig: Selena Gomez situr fyrir kviknakin og gefur út nýju smáskífuna Same Old Love

Ef marka má glamúr undanfarinna ára, er stórfengleg sýning í vændum en hér að neðan má sjá brot af sýningu Victoriu Secret í sl. desember, þegar þau Taylor Swift, Ariana Grande, Ed Sheeran og Hozier tróðu upp við ómældan fögnuð. Má því jafnvel segja að dýpri sálarflutningur svífi yfir vötnunum í ár.

Rihanna-Doutzen-Kroes-Vogue-13Oct15-Getty_b

Sjá einnig: Rihanna með SJÚKLEGA flotta HNÉSOKKA á markað

Hér má sjá brot af sýningunni í fyrra – en Taylor Swift treður upp þegar 8.40 mínútur eru liðnar:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!