KVENNABLAÐIÐ

Rihanna með SJÚKLEGA flotta HNÉSOKKA á markað

Vegir Rihönnu eru með öllu órannsakanlegir, en stjarnan hefur nú lagt fyrir sig sokkahönnun og það sem meira er; línan er sjúklega töff, rokkuð og ögrandi eins og RiRi einni er lagið.

Tískuheimurinn stendur á öndinni yfir hugdettunni, en Rih lætur sér fátt um finnast og birtist þannig íklædd nær engu öðru en sokkunum sjálfum og það á vefsíðu Vogue fyrir skemmstu. Línan sjálf er framleidd í takmörkuðu upplagi, parið kostar litla 26 dollara gegnum vefverslun STANCE og það sem meira er; hvert par er tölusett.

holding-rihanna-stance-collaboration

Línan heitir Murder Rih Wrote og er óður til myndbandsins sem gerði allt vitlaust fyrir stuttu við stórsmellinn Bitch Better Have My Money en einnig er hægt að fá ökklaháa dömusokka og svo herrasokka í sama stíl.

rihannasokkar2

Örvæntið þá eigi, því lína Rih er stærri og veigameiri; pönkaðir og ögrandi sokkarnir sem hér má sjá marka einungis upphaf sokkaframleiðslu (hvernig gerðist það eiginlega?) stórsöngkonunnar og öll línan í heild sinni, sem inniheldur eina 18 mismunandi sokka, verður kynnt í september … ásamt sérstakri hátíðarlínu sem kemur á markað í nóvember.

#murderrihwrote

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!