KVENNABLAÐIÐ

Selena Gomez situr fyrir kviknakin og gefur út nýju smáskífuna Same Old Love

Selena Gomez hefur afhjúpað lagalista nýrrar breiðskífu sem út kemur þann 9 október nk. en samhliða því sem hún deildi fréttunum, lét hún aðra smáskífu frá sér fara – sem þeyttist upp tístlista Billboard strax við útgáfu, en áður útkomin smáskífa Selenu af breiðskífunni REVIVAL; Good For You, prýðir nú sjötta sæti Billboard 100 listans.

Nýja smáskífan ber heitið Same Old Love og fjallar um upplognar ástir Selenu og nafnlauss elskhuga, en fyrir neðan lagalistann sjálfan má hlýða á nýjustu útgáfu Selenu. Svona mun albúmið líta út og hér má sjá lagalistann í heild sinni.

selena-gomez-revival-album-2015-billboard-650x650

 

Auk þess verður þrjú lög að finna á DELUXE útgáfunni sem ekki eru talin upp hér; Me & My Girls, Nobody og Perfect en hér fer nýja smáskífan hennar Selenu Gomez:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!