KVENNABLAÐIÐ

Erpur verið edrú síðan í fyrra: „Mig byrjar að langa í áfengi með vorinu“

„Mig langar í raun ekkert í áfengi en þegar mig byrjar að langa í áfengi, það er venjulega með vorinu. Þess vegna er ég rólegur þangað til í vor,“ segir tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson, sem hefur í áratugi rappað um romm og vindla. Í dag neitar hann sér um þessi hugðarefni sín og hefur ekki drukkið síðan í fyrra.
„Alkavinir mínir sem eru öflugastir, það er eiginlega samdóma álit eins og einn góður maður sagði: Nei Erpur er enginn alkóhólisti, hann er ofdrykkjumaður,“ segir Erpur í samtali við Sigurlaugu M. Jónasdóttur í þættinum Okkar á milli á RÚV.

Erpur á það til að hneyksla fólk og rífa kjaft. Í þættinum segist hann hins vegar hafa fengið  en í raun menningarlegt uppeldi þar sem lesnar bækur fyrir hann og lögð áhersla á andlegan auð. Sjálfur vill Erpur leggja sig fram um að vera betri maður og biður íslenskuþjóðina um að örvænta ekki því Erpur muni snúa aftur á djammið.

Erpur segir alla vini sína vera alkóhólista – helmingur virkur og hinn helmingurinn óvirkur. Hann telur það þó ekki endilega eiga við hann sjálfan, edrúmennskan nú snúist meira um drungalega fyrstu mánuði ársins. „Það er D-vítamínskortur, maður er þreyttari og pirraðri en fólk þarf ekkert að fara að hengja sig eða éta einhver pilluspjöld, þetta er bara D-vítamínskortur.“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!