KVENNABLAÐIÐ

Ofnbakað lambalæri með sætu lauk-marmelaði

Auglýsing

Marínering:

  • 2 msk kóríander fræ, möluð
  • 2 stilkar rósmarín, hreinsað af stiklunum og saxað niður
  • 1 hvítlauksgeiri, rifinn niður
  • 2 rauð chilli
  • 1 ½ tsk sjávarsalt
  • svartur pipar
  • 1 msk ljós púðursykur
  • 1/2 dl ólívuolía

Hráefni:

  • ólívuolía
  • 2.5 kg lambalæri
  • 4 laukar, skornir gróft niður
  • 5 hvítlauksgeirar
  • 3 stilkar timjan
  • 1/2 dl kjúklingasoð
  • 3 msk ljós púðursykur
  • 2 msk balsamik edik
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

1. Setjið öll hráefnin fyrir marineringuna saman í skál og blandið vel saman, gott er að gera þetta með mortéli.

2. Nuddið næst kryddblöndunni á lambalærið, setjið filmu yfir og leyfið lærinu að standa í ísskáp yfir nótt.

3. Takið lærið úr ísskápnum og leyfið því að standa þar til það nær stofuhita. Hitið ofninn í 180 gráður. Takið stórt ofnfat og dreifið lauknum, hvítlauknum og timjan í fatið. Kryddið þetta rausnarlega með salti og pipar. Leggið lambalærið yfir og hellið kjúklingasoði meðfram lærinu. Leggið álpappír lauslega yfir fatið og setjið þetta inn í ofn í 2 og  1/2 klukkutíma.

4. Takið álpappírinn af og snúið lambinu við. Dreifið púðursykri og balsamik ediki yfir laukinn og hrærið í þessu. Setjið þetta aftur inn í ofn í 1 klst. Þá er hitinn hækkaður í 220 gráður og þetta bakað áfram í 20 mín. Takið úr ofninum, takið lærið úr fatinu og leggið það til hliðar. Hellið lauknum og öllu ‘gumsinu’ úr fatinu í lítinn pott og leyfið þessu að malla stutta stund. Kryddið til með salti og pipar eftir smekk. Berið lambið fram með lauksultunni og ofnbökuðum kartöflum eða grænmeti.