KVENNABLAÐIÐ

Liam Hemsworth vill taka því rólega með Maddison Brown

Liam Hemsworth skildi við Miley Cyrus á afskaplega opinberan hátt, þar sem hún fór strax á fullt með nýjum elskhugum, Kaitlynn Carter og Cody Simpson. Liam er nú að taka því rólega með nýju ástinni sinni, Dynasty leikkonunni Maddison Brown.

maddison

Auglýsing

Þau sáust í New York í síðasta mánuði en vilja ekki gera sambandið opinbert: „Þau vinna ótrúlega mikið, en um leið og þau hafa smá tíma hittast þau, hvort sem það er í Toronto eða New York, gera þau það. Þau elska að elda og fá sér vínglas saman,“ segir vinur hennar.

Auglýsing

„Eftir allan þennan tíma hefur Liam saknað þess sárt að vera í rólegu, notalegu sambandi – það er það sem hann hefur viljað allan tímann. Hann var frekar pirraður þegar það náðust myndir af þeim kela í New York. Þau halda sig innandyra eftir það – og hlæja að Miley hvað hún er barnaleg og athyglissjúk í fjölmiðlum.“

Miley var afar leið þegar Liam hætti að fylgja henni á Instagram. Hún hefur reynt margt til að ná athygli hans, s.s. hringja í hann þegar hún er full eða sýna Cody og líkama hans á samfélagsmiðlum .

„Hann bara yppir öxlum og reynir að útiloka hana úr lífi sínu, sem gerir Miley brjálaða,“ segir hann.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!