KVENNABLAÐIÐ

13 ára Broadwayleikkona lést á dularfullan hátt

Laurel Griggs, rísandi stjarna í leiklistarheiminum í New York, er látin. Hún var einungis 13 ára en hafði komið fram á Broadway ásamt Scarlett Johansson og í söngleiknum Once sem vann Tony verðlaun.

Auglýsing

Laurel lést þann 5. nóvember en aðstæður varðandi dauða hennar hafa ekki verið gefnar upp.

Laurel kom fram sex ára gömul í söngleiknum Cat on a Hot Tin Roof áður en hún kom einnig fram í Once þar sem hún lék hlutverk Ivönku í nokkur ár, lengst allra. Einnig var hún gestur í mörgum kvikmyndum og þáttum og Saturday Night Live.

Hún bjó með foreldrum sínum í New York borg þar sem hún gekk í almenningsskóla.

Eliza Holland Madore sem lék einnig Ivönku í Once, skrifaði fallegan Instagram póst um Laurel: „Ég er afar döpur vegna andláts einnar Ivönku systur minnar. Laurel – þú varst alltaf brosandi og lést aðra hlæja.“

*Uppfært*

Laurel fékk alvarlegt astmakast á heimili sínu fimmtudagskvöld og lést. Þrátt fyrir að hafa lyf áttu hún erfitt með andardrátt. Um 7:25 fékk hún kastið og reyndu bráðaliðar að bjarga lífi hennar með hjartahnoði í sjúkrabílnum, en fjórum tímum síðar var hún úrskurðuð látin.

Auglýsing

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!