KVENNABLAÐIÐ

Kate Middleton vekur þvílíka athygli á BAFTA verðlaunahátíðinni: Myndir

Hertogaynjan og hertoginn af Cambridge eru heiðursgestir á BAFTA verðlaunahátíðinni, en þau eru kvikmyndaverðlaun bresku kvikmynda-akademíunnar. Kate Middleton vakti gríðarlega athygli í hvítum kjól með einni ermi og svo bar hún eyrnalokka Díönu prinsessu með þessum fallega kjól.

Auglýsing

Hátíðin er haldin í Royal Albert Hall í Kensington, London.

bafta3

Sagt er að Kate beri eyrnalokkana því þeir voru uppáhald Díönu. Díana var sjálf með þá á tónleikum í Royal Albert Hall árið 1991.

Auglýsing

di

Kate var mjög glæsileg við hlið eiginmanns síns, en var með uppsett hár, silfraðan augnskugga og húðlitaðan varalit.

Margir sögðu að Kate hefði aldrei verið glæsilegri!

bafta

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!