KVENNABLAÐIÐ

Courteney Cox og Lisa Kudrow búa til nýja sjónvarpsþætti – án Jennifer Aniston

Fyrrum Friends stjörnurnar Courteney Cox (Monica) og Lisa Kudrow (Phoebe) hafa nú í deiglunni nýja þáttaröð en Jennifer Aniston verður ekki boðið að vera með.

Auglýsing

„Courteney og Lisa eru í miðjum viðræðum um að búa til þætti saman. Þeim kom alltaf vel saman og vilja vinna saman á n´y. Jen er alltaf upptekin í milljón verkefnum svo Courteney datt ekki í hug að einu sinni spyrja hana,“ segir vinur stelpnanna í viðtali við Radar.

Auglýsing

„Jen á eftir að sárna þetta mjög. Þáttaröð Jennifer og Reese Witherspoon á Apple hafa ekki gengið nógu vel. Jen gæti séð þetta sem samkeppni.“

Courteney (54) og Lisa (55) hittust nýlega á Palm veitingastaðnum í Beverly Hills og sögðu sjónarvottar að þær hefðu verið í djúpum og innilegum samræðum, væntanlega um nýja þætti.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!