KVENNABLAÐIÐ

Góð ráð til að efla líkamsmynd barna

Margskonar áreiti dynja á börnum og unglingum nú til dags sem hafa slæm áhrif á líkamsmynd þeirra og líðan. Þau eru alin upp í menningu sem lofar grannan vöxt og lítur fitu neikvæðum augum. Lítið tillit er tekið til þess að við erum öll mismunandi frá náttúrunnar hendi. Þess vegna er mikilvægt að ýta undir jákvætt viðhorf barna til líkama síns. Samband barns við líkama sinn skiptir miklu máli.

Rannsóknir hafa sýnt að neikvætt viðhorf til líkama og útlits tengist margskonar geðrænum vanda meðal ungmenna, s.s kvíða, átröskunum, þunglyndi og jafnvel sjálfsvígstilraunum. Einnig hefur komið í ljós að líkamsmynd hefur áhrif á heilsu og lífsvenjur.

Langtímarannsóknir sýna að unglingar sem eru ánægðir með líkama sinn, hvort sem þeir eru feitir eða grannir, hugsa betur um sig og hreyfa sig meira og þyngjast síður með árunum en þeir sem hafa neikvætt viðhorf til eigin líkama. Það er því sjálfsagður hluti af heilsueflingu meðal barna og unglinga að stuðla að jákvæðu sambandi þeirra við líkama sinn og vinna gegn stríðni, neikvæðum viðhorfum og fordómum vegna holdafars.

Auglýsing

Hér eru nokkur góð ráð til þess að efla líkamsmynd barna:

1. Allir eru öðruvísi
Kenndu barninu þínu að fjölbreytileiki í líkamsvexti sé eðlilegur. Alveg eins og við erum mismunandi á litinn, höfum ólíkt andlitsfall, hárlit og augnlit, þá erum við líka mismunandi í laginu. Þetta er sjálfsögð staðreynd sem allir ættu að virða.

2. Útrýmum fordómum
Kenndu barninu þínu að það sé ekki rétt að stríða eða tala illa um aðra vegna þess hvernig þeir líta út. Fordómar vegna holdafars og útlits eru alveg jafn slæmir og skaðlegir og aðrir fordómar. Ef við verðum vör við slíka fordóma þá ber okkur að bregðast við.

3. Elskaðu líkama þinn
Talaðu jákvætt um líkama þinn og hugsaðu vel um hann. Aldrei tala illa um vaxtarlag þitt svo barnið þitt heyri. Lærðu að þykja vænt um líkama þinn þótt hann sé ekki fullkominn og þannig lærir barnið að bera virðingu fyrir sínum líkama.

4. Eflum gagnrýna hugsun
Fræddu barnið um óraunhæf útlitsviðmið í samfélaginu og hvernig þau birtast, t.d. í fjölmiðlum, barnaefni og leikföngum. Storkaðu fordómum vegna holdafars hvenær sem þú rekst á þá og skapaðu andrúmsloft mannúðar og virðingar fyrir öllu fólki.

5. Kenndu barninu þínu að líkami þess sé góður líkami
Líkamsmyndin er hluti af sjálfsmynd okkar. Kenndu barninu þínu að vera stolt af sínum sérkennum. Aldrei segja neitt neikvætt um líkama barnsins þíns og taktu hart á því ef einhver annar gerir það. Samband barnsins við líkama sinn er dýrmætt.

6. Hlustaðu á barnið þitt
Ef barnið lýsir áhyggjum af líkamsvexti sínum er mikilvægt að hlusta. Reyndu að komast að því hvað býr þarna að baki. Varð barnið fyrir neikvæðri reynslu nýlega? Hefur það séð eða heyrt eitthvað sem fékk það til að skammast sín fyrir líkama sinn? Sýndu stuðning og ekki líta svo á að holdafari barnsins sé um að kenna. Ef barnið hefur orðið fyrir höfnun vegna þess hvernig það lítur út þá er vandamálið í umhverfinu, ekki hjá barninu.

7. Hegðun en ekki holdafar
Ef þú hefur áhyggjur af lífsvenjum barnsins þíns skaltu beina sjónum að hegðun þess en ekki holdafari. Skapaðu umhverfi þar sem barnið fær næg tækifæri til að borða hollan mat og hreyfa sig sér til ánægju.

Hvorki þú né barnið ættuð hins vegar að líta á heilbrigðar lífsvenjur sem grenningaraðferð, heldur eitthvað sem allir þurfa að gera til þess að halda heilsu og líða vel. Það skiptir mestu að upplifun barnsins verði jákvæð þannig að það hafi áhuga á að lifa heilbrigðu lífi til langframa.

Doktor.is – allur fróðleikur um heilsu og lyf!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!