KVENNABLAÐIÐ

Rihanna og Drake hætt saman

Þetta gekk snöggt yfir: Minna en tveimur mánuðum eftir að hafa lýst yfir ást sinni á hvort öðru hafa Drake og Rihanna ákveðið að hætta saman. Segir sagan að Rihanna hafi ekki verið sátt við samskipti kanadíska rapparans við Instagram fyrirsætuna Dakota Gonzales eftir tónleika hjá honum þann 11. september síðastliðinn í Las Vegas.

„Þegar Rihanna kemst ekki á tónleika hjá honum er Dakota oft við hlið hans. Það gerir Rihönnu brjálaða,“ segir InStyle Magazine. Drake var einnig ekki viðstaddur frumsýningu nýju Puma línu Rihönnu í París í síðasta mánuði.

Dakota er ekkert ósvipuð söngkonunni
Dakota er ekkert ósvipuð söngkonunni

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!