KVENNABLAÐIÐ

Rihanna og Drake eru að fara að gifta sig!

Söngparið Rihanna og Drake gerðu samband sitt opinbert í ágúst en nú berast fréttir þess að þau séu að ganga í það heilaga. Heimildarmaður Life & Style segir að þau séu að undirbúa brúðkaup í heimalandi Rihönnu, Barbados. „Þau hafa verið að tala um brúðkaup í einhvern tíma og Rihanna vill verða Mrs. Graham,“ segir þessi ónefndi heimildarmaður.

Auglýsing

Drake sem er 29 ára er víst ólmur í að leiða Rihönnu upp að altarinu: „Hann vill svo sannarlega að Rihanna fái stærsta trúlofunarhring í bransanum og hann vill að þetta gerist mjög fljótlega.“

Fyrrverandi kærasti Rihönnu, Chris Brown sem beitti hana ofbeldi hefur litla trú á að parið sé að ná svona vel saman: „Chris þekkir Rihönnu og telur að hún sé ekki ástfangin af Drake eins og hún elskaði hann,“ segir heimildarmaður við Urban Islandz um hvernig Chris liði með að Drake og Rihanna væru aftur byrjuð saman. „Rihanna mun alltaf elska Chris og Drake er bara að reyna að láta hana elska sig á sama hátt. Þú getur samt ekki þvingað ástina.“

 

Við allavega vonum að Drake og Rihanna láti verða af giftingunni…hann virðist allavega betri kostur en Chris!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!