KVENNABLAÐIÐ

Eru Drake og Rihanna að byrja aftur saman?

Svona á maður að óska einhverjum til hamingju! Rihanna mun veita Michael Jackson Video Vanguard verðlaununum viðtöku á morgun, sunnudaginn 28. ágúst en þá fer MTV Video Music hátíðin fram. Söngvarinn Drake ákvað að óska henni til hamingju og keypti heilt auglýsingaskilti til þess!

Rihanna þakkaði honum fyrir með orðunum: „When he extra,“ og setti mynd á Instagram af risastóru auglýsingaskiltinu sem sjá má hér að neðan.

Parið hefur sungið mörg lög saman og hafa þau nær undantekningarlaust verið vinsæl. Þau voru eitt sinn par en spurningin er nú hvort þau séu að kynda í gömlum glæðum. Að minnsta kosti virðist gneista af þeim á sviðinu!

drake ri

 

When he extra ❤?!!!

A photo posted by badgalriri (@badgalriri) on

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!