KVENNABLAÐIÐ

Segist vera „of falleg til að vinna“

Nýtur meiri forréttinda en aðrir og flýgur frá London til Mosku til að fara í klippingu: Julia Stakhiva reitti áhorfendur þáttarins This Morning á ITV til reiði með ummælum sínum. Er hún 23 ára rússnesk kona sem fædd er inn í auðuga fjölskyldu – segist hún of falleg til að vinna og eyði þess vegna lífi sínu í að skemmta sér. Foreldrar Juliu eiga fyrirtæki í matvælabransanum sem metin eru á milljarða segist ekki hafa haft hugmynd um hversu rík eða falleg hún væri meðan hún ólst upp: „Mér leið aldrei sem ég væri neitt sérstök. Ég skildi ekki af hverju fólk glápti á mig en ég skil það núna – því ég átti svo falleg föt og skó.“

Hefur hún þó áhuga á að fólk verði afbrýðisamt vegna þess hversu rík og falleg hún er…sjá myndbandið hér að neðan:

Auglýsing

Julia gengur í fötum frægra hönnuða sem kosta tugi milljóna. Hún státar af handtöskusafni sem telur yfir 100 töskur – allar kosta jafnvirði 600 þúsund króna hver. Julia er ein af ríku krökkunum í Moskvu sem hefur öðlast frægð í gegnum Instagram.

40.000 manns fylgja nú rússnesku dömunni. Kynnir þáttarins sagði að sennilega væru flestir fylgjendanna einhverjir sem hata hana en Julia viðurkenndi að svo sennilega væri: „Já, það er fullt af fólki sem hatar mig – skammast út í mig fyrir að vera rík. Ég skil samt ekki hvernig þau geta kennt mér um, ég kaus ekki þetta líf. Ég fæddist inn í það.“

Auglýsing

Þrátt fyrir staðhæfingar hennar um að vera „of falleg“ segist hún ekki veigra sér við að vinna og vill höndla fjölskyldufyrirtækið í framtíðinni: „Ég er einkabarn. Ég þarf að halda því áfram sem faðir minn skapaði. Það er mikill þrýstingur frá foreldrum mínum að skara framúr. Þau vilja ég sé falleg, klár og menntuð.“
Sjáðu viðtalið hér að neðan:

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!