KVENNABLAÐIÐ

Ben Affleck og Jennifer Garner hætt við að skilja

Leikaraparið Jennifer Garner,44 ára, og Ben Affleck, 43 ára, tilkynntu fyrir nákvæmlega ári síðan að þau væru skilin að borði og sæng. Nýjustu fregnir gulu pressunnar herma þó að þeim hafi snúist hugur og ætli ekki að sækja um lögskilnað.

„Þau hafa ekki formlega sótt um lögskilnað og þau trúa að það muni ekki gerast,“ segir ónafngreindur heimildarmaður, vinur þeirra hjóna samkvæmt ET.

Parið á þrjú börn: Violet sem er 10 ára, Seraphina 7 ára og Samuel fjögurra ára. Þau höfðu verið gift í 10 ár áður en að tilkynningin barst um skilnað í júní 2015.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!