KVENNABLAÐIÐ

Bella Hadid er nýtt andlit Dior

Ofurfyrirsætan Gigi Hadid á yngri systur sem heitir Bella. Hefur Bella nú landað stórum samningi við snyrtivörurisann Dior. Hún á ekki langt að sækja hæfileikana þar sem stóra systir er andlit Maybelline snyrtivaranna.

Þetta er Bella
Þetta er Bella

Isabella Khair Hadid er fædd þann 9 október 1996 í Los Angeles, Kaliforníu. Hún er dóttir Yolanda Hadid sem var sjálf fyrirsæta á níunda áratugnum. Hún er palestínsk/hollensk og var ein af stjörnunum í þættinum The Real Housewives of Beverly Hills. Faðir Bellu og Gigi heitir Mohamed og er vellauðugur fasteignasali.

Systurnar eiga ekki langt að sækja fegurðina en þetta er móðir þeirra, Yolanda Hadid
Systurnar eiga ekki langt að sækja fegurðina en þetta er móðir þeirra, Yolanda Hadid

Bella hefur sýnt fyrir alla þá helstu í tískuheiminum og einnig hefur hún leikið í kvikmyndum. Hún hefur lært ljósmyndun og elskar líka að skrifa.

 

Margir hafa bent á hversu lík Bella er Jennifer Lawrence
Margir hafa bent á hversu lík Bella er Jennifer Lawrence
Með kærastanum, The Weeknd. Þau hafa verið par í rúmt ár
Með kærastanum, hinum kanadíska The Weeknd. Þau hafa verið par í rúmt ár

bella3

Frægðin tekur þó sinn toll og var Bella handtekin árið 2014 fyrir ölvunarakstur. Var henni gert að greiða sekt, vinna 25 tíma í samfélagsþjónustu og mæta á 20 AA fundi.

bella2

Með systur sinni, Gigi
Með systur sinni, Gigi
Flestir kannast við Gigi en hún er eldri systirin
Flestir kannast við Gigi en hún er eldri systirin
Við hlökkum til að sjá Bellu auglýsa Dior!
Við hlökkum til að sjá Bellu auglýsa Dior! 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!