KVENNABLAÐIÐ

Caitlyn Jenner gæti aftur orðið Bruce Jenner

„Allt ferlið hefur verið einstaklega erfitt fyrir Caitlyn,” segir Ian Halperin sem skrifaði bók um Kardashian fjölskylduna: “Kardashian Dynasty: The Controversial Rise of America´s Royal Family.”

 

Bókin er nýútgefin og meðan Halperin rannsakaði sögu fjölskyldunnar segir hann að margir hafi komið að máli við sig og sagt að Caitlyn sé í raun afar óánægð með breytinguna og hefur verið að gæla við þá hugmynd að láta breyta sér aftur í karlmann.

 

„Einn heimildarmaður hefur talað um kynleiðréttingar-eftirsjá (e. sex change regret) og gefið í skyn hún kunni að verða aftur Bruce Jenner.” Annar heimildarmaður á að hafa sagt að meðan Cait væri afar ánægð að styðja málstað transfólks gæti hún endurskoðað val sitt um kyn. „Ég giska á að það verði innan tveggja ára.”

 

Samkvæmt Halperin er ein aðalástæðan fyrir því að hún er hneigist enn til kvenna. „Hún er enn hrifin af konum og vill hitta hina einu réttu,” segir Halperin.

Talsmaður Caitlyn Jenner hefur þverneitað staðhæfingum Halperins.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!