KVENNABLAÐIÐ

Ozzy og Sharon Osbourne að skilja eftir 33 ára hjónaband

Stjörnuparið Ozzy og Sharon hafa gefið út yfirlýsingu um að þau séu að skilja. Ozzy Osbourne hefur nú þegar tekið ákvörðun um að flytja af heimili þeirra Sharon samkvæmt E! News.

 

Ozzy og Sharon hittust á áttunda áratugnum þegar hljómsveit Ozzys, Black Sabbath, var að gera það gott. Ozzy var söngvarinn eins og flestir vita. Sharon varð svo umboðsmaður hljómsveitarinnar í framhaldi.

Þau giftu sig árið 1982 og eiga þrjú börn, Jack, Kelly og Aimee. Þau slógu öll í gegn sem fjölskylda í raunveruleikaþáttunum “The Osbournes.”

ozzy2

Ozzy hefur löngum glímt við áfengis- og eiturlyfjafíkn og sögusagnir sögðu að þau væru að skilja árið 2013 þegar hann hafði verið í neyslu í eitt og hálft ár. Hann sagði þó á Facebook að hann hefði nú verið edrú í 44 daga. Viku seinna útskýrði Sharon í þætti sínum “The Talk” að hann hefði verið í neyslu en að þau væri ekki að skilja. „Það er alltaf talað um þetta á sem verstan hátt í fjölmiðlum. Það var þó sannleiksögn í þessum fréttum.

 

Í dag er Ozzy búinn að vera edrú í fjögur ár, segir talsmaður hjónanna, og er skilnaðurinn ekki vegna neyslu í þetta skiptið.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!