KVENNABLAÐIÐ

Kylie Jenner kveðst hafa fundið upp hárkolluna

„Ég fór að vera með hárkollur og nú eru allir að fá sér hárkollur!“ Þetta lét Kylie Jenner frá sér fara í viðtali við tímaritið Marie Claire sem kemur út innan skamms. Tekur tímaritið fram „fersk andlit“ eða „Fresh Faces“ þar sem andlitum á borð við Ellie Goulding, Gugu Mbatha-Raw, Haily Baldwin og Zendaya meðal annars.

Tjáir Kylie sig um m.a. um samband sitt við Justin Bieber og um tilfininngar hennar.

Segir Kylie að hún hafi farið að vera með hárkollur og allt í einu hafi allir farið að vera með hárkollur. „Ég lánaði Kim (Kardashian) kollugaurinn minn í gær og það virðist sem allt sem ég geri þá mun fólk fylgja því.“

Einnig hefur Kylie látið frá sér fara að pósti hún sexý myndum af sér á samfélagsmiðlum sé hún alltaf eins og: “ Ó, guð, allir eru að sjá líkamann minn,“ og mér finnst það alltaf furðulegt.“

Til gamans má geta þeirra sem hafa notað hárkollur á undan Jenner:

  • Cher
  • Egyptar til forna
  • James Madison
  • Svartar konur á 18. öld til dagsins í dag
  • Katy Perry
  • Nicki Minaj
  • Lady Gaga
  • Natalie Portman í Closer
  • Elísabet drottning
  • Rihanna
  • Beyoncé
  • Uma Thurman í Pulp Fiction
  • Tyra Banks
  • Marie Antoinette

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!