KVENNABLAÐIÐ

Vicoria´s Secret fyrirsæta hættir í bransanum vegna þrýstings á að grenna sig

Fyrrum VS engillinn Erin Heatherton hefur nú gefið upp ástæðu þess að hún hætti að sýna fyrir fyrirtækið. Ástæðuna segir hún vera að á síðustu tveimur sýningum sem tók þátt í var verið að þrýsta á hana að grennast enn meira. Erin var farin að þróa með sér þunglyndi og fannst nóg um. Hún fór í ræktina tvisvar á dag og var að velta fyrir sér að hætta að borða.

vs1

Erin segir bransann þrýsta óeðlilega á fyrirsætur að vera “fullkomnar” og gat hún hreinlega ekki meira.

 

Segir hún í viðtali við Motto að stöðugar aðfinnslur að útliti hennar hafi lagst mjög þungt á hana: “Ég vann eins og skepna og mér var farið að líða ömurlega, eins og ég gæti ekki gert neitt rétt.”

vs4

Er Erin nú talsmaður vakningar um þunglyndissjúkdóma og hefur Instagram sem vettvang til að tjá sig: “Ég var að misbjóða sjálfri mér og líkama mínum. Ég bar mig saman við aðrar konur og fannst ég vera auli að geta ekki grennt mig.”

vs3

Eins og sjá má er Erin langt frá því að vera í yfirvigt og óskum við henni bara til hamingju með ákvörðunina!

vs2

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!