KVENNABLAÐIÐ

Dónalegasta auglýsing Beckham fyrir H & M er komin út!

Dónalegasta uppátæki Beckham er komið út; vorauglýsing fyrir herrafatnað frá tískurisanum H & M, þar sem sjá má íbúa Lissabon elta fótboltastjörnuna á röndum. Ekki einungis vilja allir íbúar Lissabon vera eins og fótboltastjarnan, heldur herma þeir eftir hverri hreyfingu David, sem að lokum kastar af sér þægilegum fatnaðinum og grípur handklæði til að stíga inn í sturtuna, með þeim afleiðingum að karlpeningurinn á götum úti gerir slíkt hið sama.

Erfitt er að segja til um hvernig tökur fóru fram og gaman væri að gægjast að tjaldabaki í þeim tilgangi að fletta ofan af hvaða tæknibrellur voru nýttar við gerð auglýsingarinnar; hvort þúsundir karla köstuðu einfaldlega af sér handklæðinu og gengu naktir um götur borgarinnar meðan myndatökuteymið filmaði atburðinn í rauntíma … eða hvort um einfaldar brellur er að ræða.

Meti hver fyrir sig; hér feta Lissabon-búar í dónaleg spor Beckham, sem auglýsir vorlínu H & M:

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!