KVENNABLAÐIÐ

Sjúklega flott förðunarkennsla frá Ditu Von Teese – Myndband

Rauði varaliturinn, sem er aðalsmerki Ditu Von Teese, er í aðalhlutverki í nýju förðunarmyndbandi sem burlesquestjarnan og fegurðardísin sendi frá sér fyrir skömmu síðan í þeim tilgangi að kynna nýútkomna bók sína; Your Beauty Mark.

Hægt er að kaupa áritað eintak af fegurðarbiblíu fröken Von Teese, en dýrðin er ekki ókeypis þó sannarlega megi segja að eiginhandaráritun Ditu, sem fylgt getur í kaupunum og svo varalitur hennar sjálfrar; eða áþrýstur koss á blaðsíðum bókarinnar, verði svo sannarlega að segjast eiguleg gjöf.

Dýrast er að panta bók með persónulegri kveðju, sem er handrituð af sjálfri Ditu ásamt eldrauðum kossi á síðum bókarinnar en slíkt eintak kostar litla 150 bandaríkjadali eða u.þ.b. 20.000 íslenskar krónur og er sendingarkostnaður þá ekki innifalinn.

Dita Von Teese: Bull og vitleysa að mittisþjálfar gagnist við megrun

Hefðbundið eintak af bókinni kostar hins vegar einungis 85 bandaríkjadali eða 11.000 íslenskar krónur og segja fróðir í fegurðarbransanum að ritið, sem sviptir hulunni af leyndarmálum einnar af fegurri konum heims, sé hverrar krónu virði.

Dita, gjöful að venju, liggur þó ekki á kærleikanum heldur gaf út þetta skemmtilega myndband fyrir skömmu, þar sem hún sýnir skref fyrir skref hvernig hún velur að setja á sig varalit.

Fyrst mattur varapensill …. og svo er það varaliturinn:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!