KVENNABLAÐIÐ

Frítt mánaðarkort fyrir sextán ára hjá World Class til áramóta

Ókeypis mánaðarkort í World Class stendur nú öllum þeim til boða sem fæddir eru árið 1999, en tilboðið gildir til áramóta. Innifalið er stakur tími hjá þjálfara og frír aðgangur að Laugardalslaug, Lágafellslaug, Seltjarnarneslaug ásamt aðgangi að öllum opnum hópatímum í stöðvum World Class.

Þessu greinir m.a. VÍSIR frá en í samtali við Björn Leifsson, framkvæmdarstjóra World Class við fréttamiðilinn kemur einnig fram að hugmyndin hafi kviknað eftir að sonur hans, sem er sextán ára gamall, tók að sýna aukinn áhuga á líkamsrækt. Aldurstakmark World Class er 15 ára, en Björn segir jafnframt að þó sonur hans hafi ávallt sýnt áhuga á íþróttaiðkun hafi ræktin ekki farið að heilla fyrr en nýverið.

„Þegar hann fór svo núna að sýna meiri áhuga datt okkur í hug að gefa ungu fólki tækifæri til að prófa og gefa þeim einnig færi á að fá leiðbeiningar frá þjálfara um hvernig er best að bera sig að því það er nauðsynlegt að æfa rétt.“

Þá segir Björn jafnframt að engin annmörk séu á því hvernig unga fólkið kjósi að eyða mánaðarkortinu, meðan einhverjir kjósi að taka með félaga í tækjasalinn vilji aðrir jafnvel slaka á í pottunum og spjalla í góðu tómi:

„Mánuðurinn er þeirra og þau geta nýtt hann eins og þau vilja. Það er nauðsynlegt að hreyfa sig og svo er líka alveg jafn nauðsynlegt að hafa gaman að.“

Vísir greindi frá /

Forsíðumynd er skjáskot af vefsíðu World Class

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!