KVENNABLAÐIÐ

Ástarstjörnuspá fyrir vikuna 12.-18. júlí

Hvað segja stjörnurnar um ástina þessa vikuna? Sumir eiga bara að fylgja straumnum en aðrir þurfa að hafa meira fyrir hutunum. Það skiptast á skin og skúrir eins og í veðrinu en mundu að það birtir ávallt upp um síðir. Njótið stundarinnar.

hrutur

Hrúturinn:

Það er mikil vatnsorka í kringum þig þessa dagana og því upplifir þú þessi þyngsli en þetta er ekki rétti tíminn til að fara greina tilfinningar þínar. Reyndu bara að fylgja straumnum og vera í kringum ástvini.

naut

Nautið:

Þú ert svo ástfangin þessa dagana. Reyndu bara að njóta þess og mundu að þú átt það svo fyllilega skilið að vera elskuð. Nýttu þennan tíma vel og taktu þér sumarfrí. Bjóddu elskunni í óvissuferð.

tvíburi

Tvíburinn:

Það er í eðli sambanda að skipta með sér verkum. En það er ekkert sem segir að fólk í sambandi geti ekki skipt um hlutverk og það er það sem þú ert að upplifa núna. Það gæti verið afleiðing þroska þíns sem persónu. Ræddu hvernig þér líður með þetta.

krabbi

Krabbinn:

Þú finnur tilfinningalega huggun í einhverju í kringum þig þessa dagana og þér líður betur. Það er eins og allir séu að leggjast á eitt með að þér líði betur og þú sért glöð. Þú hefur ekki rifist svona lítið við þann sem þú elskar í marga mánuði. Haltu þér á þessari braut.

Ljón

Ljónið:

Þú ert að upplifa eitthvað úr æsku þinni í sambandi við ást og viðurkenningu. Þetta getur leitt til þess að þú hagir þér eins og krakki til að ná athygli frá kærasta/maka. Reyndu að sleppa við leiðinda uppákomu og átta þig á hvað er í gangi.

meyja

Meyjan:

Þú upplifir djúpar tilfinningar og alls konar líðan sem þú þekkir ekki nógu vel. En það er alveg sama hvað gengur á þessa vikuna það er ekkert sem getur tekið þessa vissu frá þér að þú sért stödd á akkúrat rétta staðnum í ást og rómantík.

vogin

Vogin:

Búðu þig undir mikið drama þessa vikuna. Þú munt fara fram og til baka í ákvörðunum þínum en í lok vikunnar verður þú með skýrari mynd af stöðunni. Mundu að treysta hjarta þínu og þá tekur þú rétta ákvörðun. Ekki láta hausinn ráða.

sporðdreki

Sporðdrekinn:

Hvað ef ástin í lífi þínu er manneskjan sem þú ert búin að vera reyna halda frá þér og ekki hugsa um síðustu vikur eða mánuði? Það sem er frábært við þessa viku er að þú öðlast skýra mynd af hlutunum en það þýðir líka að þú verður að hætta þessum „hard to get” leik.

bogmaður

Bogmaðurinn:

Þú ert svo ástríðufull og rómantísk, elsku Bogmaður að þú ert tilbúin að stökkva á bak og ríða út í sólsetrið með fyrsta heita garunum sem þú sérð. Hugleiddu að „deita” fleiri en einn í einu. Þú ert eins og segull á karlmenn þessa dagana og Bogmaður í sambandi heillar maka sinn sem aldrei fyrr.

steingeit

Steingeitin:

Þetta verður frábær vika hjá þér. Þú nýtur blessunar í sambandi þínu við ástvini og þú upplifir meiri ást og rómantík en þú hefur gert lengi. Passaðu þig á að njóta þessara daga og loka þig ekki af tilfinningalega. Slepptu þér Steingeit!

vatnsberi

Vatnsberinn:

Þú ert með margt á þínum snærum þessa dagana. Þú er með mikla persónulega ábyrgð í vinnunni og þarft að huga að tilfinningum og velferð í sambandi þínu við ástvini. Þú sleppur ekkert við að hugsa ekki um garðinn heima fyrir. Hugleiddu á morgnana og þér mun ganga betur.

fiskar

Fiskurinn:

Vá! Þú ert virkilega hrifin af gaurnum sem þú ert með og veistu, hann er líka mjög hrifinn af þér. Þú getur treyst á hann og leyft þér að vera þú sjálf. Hann er ekkert á förum. Sem Fiskur veistu að þú getur leynt tilfinningum þínum til að auka á áhuga hans en þú þarft ekkert að leika slíka leiki í þetta sinn.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!