KVENNABLAÐIÐ

Rihanna hannar ökklasokka með klingjandi bjöllum og fjöðrum skrýdda hnésokka

Tælandi hnésokkar úr hátískulínu sjálfrar Rihönnu skora hátt á óskalistanum þessi jólin og er stúlkunni augljóslega margt til lista lagt. Þannig hrinti Rihanna úr vör freistandi sokkalínu í samvinnu við tískumerkið Stance fyrr á þessu ári og sló samstarfið algerlega í gegn.

w419d15ri5_win_w

Fyrsta lína RiRi bar þannig heitið Murder Rih Wrote með beinni tilvísun í hrollvekjandi metsölusmell hennar Bitch Better Have My Money, en línan kom út í júli á þessu ári.

w715d15ri7_wht_w

RiRi, sem hefur umsjón með hönnunarþætti sokkalínunnar, kynnir nú jólalínuna sem inniheldur meðal annars slóganið Broke Bitch á tásokkum, ökklasokka með tælandi bjöllum og hnéháa og ögrandi nælonsokka með munúðarfullum fjaðrakanti.

w419d15ri6_blk_w

Línuna má alla nálgast HÉR en að neðan má sjá RiRi í myndveri með fyrirsætum:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!