KVENNABLAÐIÐ

Bitch Better Have My Money: SVAÐALEG hefnd Rihönnu í SJÖ MÍNÚTNA blóðbaði

Róleg á ofbeldinu, Rihanna! Út er komið myndband dívunnar við stórsmellinn Bitch Better Have My Money en sjálft lagið kom út fyrr á þessu ári. Og Rihanna spilar öllum trompum út í myndbandinu, sem líkist meira ofbeldisfullri stuttmynd en tónlistarmyndbandi.

Myndbandið er heilar sjö mínútur að lengd og sýnir Rihönnu ásamt tveimur áhangendum leggja á blóðug ráð sem slær allflestar hasarmyndir samtímans út – en viðkvæmir eru varaðir við áhorfinu.

Nekt, pyntingar, morð og mannrán eru meðal þess sem Rihanna teflir út en áhorfið sjálft er ógleymanlegt. Takið fyrir augun á börnunum – hér er nýútkomið myndband við smellinn Bitch Better Have My Money!

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!