KVENNABLAÐIÐ

Að gefa góðgæti… Rauðrófu chutney með eplum og engifer

Það er langt síðan ég byrjaði að huga að jólagjöfunum, eða svona á minn mælikvarða að minnsta kosti. Ég byrja venjulega að huga að gjöfunum í ágúst og fer þá að líta í kringum mig og finna hugmyndir að sniðugum gjöfum. Mér þykir aðdragandi jóla og undirbúningur þeirra alveg dásamlegur tími og iða í skinninu að geta byrjað. Allt of oft hefur desember farið í próflestur og mikið stress en þar sem svo verður ekki núna hlakka ég alveg sérstaklega mikið til aðventunnar og alls sem henni fylgir!

Eins og mér þykir gaman að rölta um miðbæinn og jafnvel verslunarmiðstöðvar þykir mér fátt eins stressandi eins og að æða um götur og ganga á síðustu stundu í óskipulegri leit að jólagjöfum. Ég myndi miklu frekar vilja vera heima í eldhúsinu mínu og búa til eitthvert góðgæti til að gefa fólkinu mínu. Og sem betur fer, þá kunna nú flestir vel að meta það að fá heimagert góðgæti. Eitt af því sem er upplagt að búa til og gefa eru sultur eða chutney ýmiskonar.

Ég notaði tækifærið um daginn þegar mamma var með smá veislu og bjó til sérlega gott rauðrófu chutney með eplum og engifer. Jólalegra getur það varla verið og það var líka svo einfalt! Chutneyið geymist vel í ísskáp í fjórar vikur svo það er upplagt að búa það til um miðjan desember ef gefa á í jólagjöf. Það er einstaklega gott með ostum og sömuleiðis með köldu kjöti, t.d skinku eða kalkún.

Rauðrófu chutney með eplum og engifer (Lítillega breytt uppskrift frá Nigella´s Christmas Kitchen)

  • 500 g hráar rauðbeður/rauðrófur, flysjaðar og smátt skornar
  • 1 kg epli, flysjuð og skorin smátt (ég notaði Pink lady epli)
  • 275 g rauðlaukur, smátt saxaður
  • 2.5 cm engiferrót, rifin eða mjög smátt söxuð
  • 50 gr þurrkaðar apríkósur, skornar smátt
  • 350 g ljós púðursykur
  • 2 tsk Maldon salt eða 1 tsk fínt salt
  • 1 tsk Allrahanda krydd 
  • 600 ml rauðvínsedik
  • 100 ml vatn

Aðferð: Setjið allt í frekar stóran pott. Kveikið undir og hleypið suðunni upp, lækkið þá aðeins hitann og látið malla undir loki í eina klst, hafið lokið skakkt á pottinum svo gufan sleppi aðeins út. Hrærið af og til. Eftir eina klukkustund takið þá lokið af, hækkið aðeins hitann og látið sjóða án loks í 30 mínútur. Þá ætti chutneyið að hafa þykknað og  um það bil helmingurinn af vökvanum gufað upp. Setjið á hreinar krukkur. Ég fyllti sjö meðalstórar krukkur, passið bara að eiga nóg af krukkum. Geymist í ísskáp í fjórar vikur.

Þessi yndislega uppskrift er frá eldhusperlur.com 

Fleiri heilnæmar uppskriftir má lesa á HEILSUTORG – smelltu HÉR

heilsutorg

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!