KVENNABLAÐIÐ

Rihanna SLAUFAR Victoria Secret á síðustu stundu – ÞESSI fyllir í skarðið!

Rihanna mun ekki leiða Victoria Secret undirfatasýninguna, sem beðið er með mikilli eftirvæntingu, en Elle Goulding mun fylla í skarðið og troða þannig upp ásamt þeim Selenu Gomez og The Weeknd.

Talsverð spenna er í loftinu fyrir sýninguna, sem verður haldin í næstu viku og var meðal annars staðfest nú um helgina að Kendall Jenner ásamt Gigi Hadid muni ganga pallana í ár fyrir undirfatarisann – en eins og SYKUR greindi frá fyrir fáeinum dögum kemur það í hlut Lily Aldridge að kynna flugeldahaldarann, sem er metinn á ríflega 2 milljónir króna og er alsettur demöntum.

Ef marka má frammistöðu Rihönnu og flutning hennar á Victoria Secret sýningunni árið 2012, er þó ákveðin synd að stúlkan skuli ekki troða upp að öðru sinni en enginn vafi leikur samtímis á því að Selena, Elle og Weeknd muni fara með stórflutning í næstu viku:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!