KVENNABLAÐIÐ

Lily Aldridge afhjúpar demantaskrýddan FANTASÍUHALDARA Victoria Secret

Sindrandi fagur fantasíuhaldari Victoria Secret nú í ár hefur loks verið afhjúpaður, en ekki er um neitt venjulegt brjóstahald að ræða, heldur dementaskrýtt undirfatasett sem er metið á margar milljónir íslenskra króna. 

Glæstur fantasíuhaldarinn er afhjúpaður í nýrri mynd á hverju einasta ári og er hefðin orðin um tveggja áratuga gömul, en ekki ómerkari ofurfyrirsætur en Claudia Shciffer og  Gisele Bündchen hafa áður borið demantaskrýddan undirfatnaðinn sem hleypur á milljóna króna verðmæti.

Sjá einnig: Rihanna, Selena Gomez og Weeknd umkringd fáklæddum englum í undirfatnaði frá Victoria Secret

Undirfataengillinn sem kynnir fantasíuhaldarann í ár er engin önnur en Lily Aldridge, sem sjálf deildi fréttunum á Instagram og er að sögn kunnugra frá sér numin af gleði og stolti yfir þessum fádæma heiðri.

Vinnan að baki haldaranum sjálfum er gífurleg, en áætlað er að u.þ.b. 685 vinnustundir hafi farið í gerðina í ár – sem prýðir 6.500 ósvikna eðalsteina og ber nafnið Fireworks Fantasy Bra, eða einfaldlega Flugelda-fantasíu-haldarinn. Sindrandi brjóstahaldarinn státar af yfir 14 ólíkum gerðum dýrmætra eðalsteina, allt frá bláum tópas og til rafgulra safírsteina, sem greyptir eru í 18 karata ósvikið gull.

gallery-1446475673-fantasy-bra-set

Brjóstahaldarinn einn og sér, sem er alsettur demöntum, vegur meir en 375 karöt, en nærbuxurnar sem eru í stíl og mynda demantaskrýtt flugelda-fantasíu undirfatasettið eru skreyttar með 126 demöntum og yfir 400 glitrandi eðalsteinum. Þá er dýrðin ekki gefins, en fantasíusettið er metið á litla 2 milljónir Bandaríkjadali …  

… og að því sögðu er sjálfsagt að kynna fröken Aldridge sem hér frumsýnir flugeldaprýtt fantasíusettið fyrir sýningu Victoria Secret sem haldin verður þann 8 desember nk.:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!