KVENNABLAÐIÐ

HÚSRÁÐ: Frábær SPARNAÐUR – Endurnýttu STÖKU frottésokkana sem RYKMOPPUKLÚTA!

Áttu gamla frottésokka sem muna sinn fífil fegurri? Er sokkaskúffan jafnvel full af stökum fullorðinssokkum? Ekki alls fyrir löngu tók SYKUR á þeim hvimleiða vanda sem stakir sokkar hafa í för með sér og þá líka hvernig má umbreyta fallegu, stöku sokkunum í litríkt sokkaskrímsli. En fleira má gera úr stökum sokkum!

Þannig er alveg stórsniðugt að nota stöku sokkana sem margnota rykmoppuklúta, sérstaklega sokka sem eru í stærri kantinum og að ekki sé talað um gamla og slitna frottésokka!

DSCF6002

Hugmyndin er ekki svo galin, sérstaklega ef taka á mið af þeim sparnaði sem hlýst af margnota rykmoppuklútum, en hér fer líka umhverfisvæn tillaga í meira lagi!

DSCF6003

Við leggjum til að hagsýnar húsmæður (og heimilisfeður) hvessi augun á tilboð stórmarkaðanna, ef frottésokkar eru á tilboði og þá sérstaklega í stærri kantinum.

DSCF5999

Þegar frottésokknum (eða staka, stóra íþróttasokknum sem enginn kannast við lengur) hefur verið smeygt framan á moppuna, er komin stórkostleg og margnota rykmoppa sem sparar peninga, tíma og dregur úr heimilissorpi.

DSCF5995

Vert að hafa í huga þegar sokkatilboð ber fyrir augu, ekki satt!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!