KVENNABLAÐIÐ

Rihanna á hvíta tjaldinu: Leikur þann ljóta í VALERIAN og Luc Besson í skýjunum

Rihanna mun birtast aðdáendum sínum á hvíta tjaldinu innan tíðar, en R & B drottningin landaði stóru hlutverki í vísindatryllinum VALERIAN, sem Luc Besson leikstýrir. Þetta munu staðfestar fregnir, en sjálfur leikstjórinn mun í skýjunum og deildi fréttunum á Instagram með þessum orðum:

RIHANNA is in VALERIAN!!!!! ….and she has a big part!! I’m Sooo excited!!!

12109161_1060199407358149_5534158087755791789_n

BBHMM: Þegar RIHANNA sendir þér EINKASKILABOÐ á Instagram – þá SVARAR þú!

Auk söngkonunnar mun Cara Delevingne, sem er öllu þekktari fyrir að tróna á hátískupöllunum, birtast í vísindatryllinum en hún fer með hlutverk Laureline. Þegar hér er komið sögu er ekki annað vitað um hlutverk Rihönnu annað en að rullan er stór og að Rihanna mun væntanlega vera á bandi myrku aflanna, ef marka má hlutverkaskipan meðleikara. Það var sjálfur leikstjórinn; Luc Besson sem tísti þannig fyrir fáeinum mánuðum að tökur hæfust í desember á þessu ári en að myndin sjálf yrði frumsýnd í kvikmyndahúsum árið 2017: 

CE0F-IkUsAEGppp

Handrit Valerian er byggt á frönsku teiknimyndaseríunni Valerian and the City of a Thousand Planets, eftir þá Pierre Christin og Jean-Claude Méziéres, sem fyrst kom fyrir sjónir lesenda árið 1967. Fyrir liggur að Cara mun fara með hlutverk Laureline, leynilögreglufulltrúa sem, ásamt leikaranum Dane DeHaan í hlutverki Valerian en saman mynda þau tímaflakkandi lögregluteymi sem tekst á við ægilegar ráðgátur og ógnir. Er óhætt að álykta að Rihanna mun sennilega fara með hlutverk þeirra ógnvalda sem standa í vegi fyrir varanlegri spekt; m.ö.o. Rihanna fer að öllum líkindum með rullu þess ljóta eða óþekkta.   

DC Comics B R J Á L A Ð I R út í Rihönnu: „Hún BLÖFFAR ekki BATMAN!“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rihanna fer með hlutverk á hvíta tjaldinu, en stúlkan landaði þannig hlutverki í kvikmyndinni Battleship árið 2012, fór með hlutverk í kvikmyndinni This Is The End, Annie og ljáði rödd sína að endingu í teiknimyndinni Home.

Screen_Shot_2015-09-09_at_10.33.57_AM_ptqk7j

Aðdáendur Rihönnu mega því eiga von á góðu, en utan þess að hanna ögrandi hnésokka sem nýverið komu á markað, er ný breiðskífa væntanleg frá söngkonunni sem ber nafnið Anti, en albúmið hefur ekki vakið síðri athygli fyrir það eitt að skarta ljósmynd af söngkonunni á barnsaldri með gyllta kórónu fyrir augum og blóði drifin nótnablöð. Enn er ekki ljóst hvenær af útgáfu verður, en örvæntið eigi, stúlkan mun einnig troða upp á árlegri sýningu Victoria Secret í desember næstkomandi.

Hér má sjá nýjustu smáskífu Rihönnu sem vakti ómælda athygli í vor – BBHMM: 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!