KVENNABLAÐIÐ

Horft í augu fortíðarinnar

Föstudaginn 21.nóvember verður Railway Man frumsýnd í Sambíóunum.
Myndin er byggð á samnefndri metsölubók og skartar m.a. Colin Firth, Nicole Kidman ásamt Stellan Skarsgard í aðalhlutverkum.

Bókin The Railway Man eftir Eric Lomax kom út árið 1995 og þykir mögnuð frásögn, ekki bara vegna þess hve vel hún lýsir ánauð þeirra 60 þúsund erlendu hermanna og stríðsfanga sem Japanir neyddu til að leggja járnbrautina frá Bangkok í Tælandi til Rangoon í Burma árið 1943 heldur einnig vegna þess að löngu síðar, eða árið 1995, hitti Eric einn af kvölurum sínum, Japanann Takashi Nagase, augliti til auglitis við brúna yfir fljótið Kwai þar sem segja má að þeir hafi gert upp málin.

Sjálfur hafði Takashi þá skrifað metsölubók um reynslu sína og notað peningana til að fjármagna Búddaklaustur sem reist var við brúna, að hans sögn í tilraun til að bæta að hluta fyrir gjörðir sínar, en af þeim 60 þúsund erlendu hermönnum sem unnu verkið, m.a. undir hans harðstjórn, dóu 12.399.

 „Wrenching, profound and beautifully made, The Railway Man is one of the stunning don’t-miss surprises of 2014.“
– New York Observer

Í aðalhlutverkum eru þau Colin Firth, Nicole Kidman, Stellan Skarsgård, Jeremy Irvine, Hiroyuki Sanada, Sam Reid, Tanroh Ishida og Marta Dusseldorp. Leikstjóri er Jonathan Teplitzky

Til fróðleiks þá var gerð heimilidarmynd um fund þeirra Erics og Takashi sem heitir Enemy, My Friend? og var sýnd á BBC-sjónvarpsstöðinni árið 1995.
Og þess ber að geta að fyrir utan þá 60 þúsund erlendu stríðsfanga sem Japanir neyddu til að vinna við hina 415 kílómetra löngu járnbraut neyddu þeir einnig um 180 þúsund asíska fanga til að vinna verkið og af þeim er talið að 90 þúsund hafi látið lífið.

Föstudaginn 21.nóvember verður Railway Man frumsýnd í Sambíóunum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!