Útilegur eru dásamlegar þegar veðrið er gott og maður er með skemmtilegu fólki. En þægindin verða að vera í fyrirrúmi þó maður sé í tjaldi. Það er ekkert að því að gera hlutina almennilega og með stíl svo að maður hafi það sem best úti í guðs grænni náttúrunni.
Notaðu leikmotturnar sem undirlag í tjaldið

Hengdu upp potta og ponnur á nærliggjandi tré með leðurbelti

Ekki neita þér um almennilegt kaffi. Búðu til instant kaffi úr alvöru kaffi í kaffipokum

Ekki láta rómantíkina vanta

Búðu þér til míní sjúkrakassa og settu það nauðsynlegasta í lyfjaglas

Bakaðu kanilssnúða í appelsínuberki

Þessir geggjuðu ruggustólar eru auðvitað toppurinn og kosta bara 99 dollara







