KVENNABLAÐIÐ

Gæti þessi hálfi laukur fengið fleiri fylgjendur en Donald Trump á Twitter?

Donald Trump hefur einn stærsta Twitterreikning sögunnar, um 22 milljónir fylgjenda. Þrátt fyrir það er einn sem vill gera tilkall til vinsælasta reikningsins og er nú að láta á það reyna. Um er að ræða hálfan lauk í plastpoka sem vill sanna að hann sé betri en nýkjörinn forseti Bandaríkjanna. Nú þegar er laukurinn kominn með tæplega 800.000 fylgjendur sem hlýtur að teljast býsna gott. HÉR er reikningurinn viljir þú styðja laukinn!

half-an-onion-Trump

Ekki er vitað hver stendur á bakvið síðuna en svaraði hann spurningum fjölmiðilsins Cnet: „Ég vildi bara búa til smá hávaða og leyfa fólki að hlæja því það þarf svo sannarlega húmor til að komast í gegnum þetta.“

View image on Twitter

What if this account that is simply half an onion in a Ziploc bag ended up with more followers than @realDonaldTrump

 

Langtímamarkmið lauksins eru hógvær: „Ég mun ekki fylla fréttaveituna þína. Ég vil bara fá fleiri fylgjendur en  @realDonaldTrump og svo verð ég vonandi notaður á hamborgara eða í eggjaköku.“

 

View image on Twitter

Still a better cabinet than @realDonaldTrump‘s.

 

View image on TwitterView image on Twitter

Who wore it better?

 

View image on TwitterView image on TwitterView image on TwitterView image on Twitter

Eric Trump always looks like he accidentally bit into a whole raw onion & is trying to act like he meant to and that it actually tastes good

Donald hefur ekki tjáð sig um nýjasta keppinautinn, enda kannski ekki tímabært. Við spáum því þó í framtíðinni!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!