KVENNABLAÐIÐ

Brad Pitt í frábærri eftirhermu og sýnir að Donald Trump hefur engan skilning á COVID-19 – Myndband

Þegar Dr. Ant­hony Fauci, for­stöðumaður Of­næm­is- og smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna var spurður í fréttum á CNN hvern hann myndi vilja sjá leika sig í þættinum Saturday Night Live. Að þeir sem hefðu verið nefndir væru Ben Stiller eða Brad Pitt. Dr. Fauci hikaði ekki og svaraði. ,,Að sjálfsögðu Brad Pitt“.

 

Auglýsing

 

Hér má sjá Brad Pitt leika Fauci með tilþrifum og gera sprenghlægilegt grín af Donald Trump, Bandaríkjaforseta sem virðist ekki hafa skilning á ógn Covid-19 gegn öllu mannkyninu.

Auglýsing

 

Dr. Fauci hefur hrósað Brad Pitt í hástert fyrir eftirhermuna.

„Ég held að hann hafi staðið sig frábærlega,“ sagði Fauci. „Ég er mikill aðdáandi Brad Pitt og það er ástæðan fyrir því að þegar fólk spyr mig hvern ég vildi að myndi leika mig, þá nefni ég Brad Pitt. Hann er einn af mínum uppáhalds leikurum. Ég held að hann hafi staðið sig frábærlega. “

Í lokin á eftirhermunni sést Brad Pitt þakka Fauci og öðrum lykilstarfsmönnum fyrir „yfirvegun þeirra og skýrleika á þessum órólegu tíma“.

Fauci leynir ekki aðdáun sinni á leikaranum: „Ég held að hann hafi sýnt að hann væri í raun vönduð manneskja, topp náungi þegar hann í lokin tók af sér hárið og þakkaði mér og öllum heilbrigðisstarfsmönnunum. Svo að hann er ekki bara frábær leikari heldur er hann í raun flottur strákur.“

Dr. Ant­hony Fauci, for­stöðumaður Of­næm­is- og smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna, hefur látið hafa eftir sér að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti og rík­is­stjórn hans hefðu getað bjargað manns­líf­um með því að bregðast fyrr við út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar í land­inu.

Yfir 530 þúsund til­felli kór­ónu­veirunn­ar hafa greinst í Banda­ríkj­un­um og 21.418 hafa látið lífið, flest­ir í New York-ríki. Mbl.is greindi líka frá.

Já, það er beinlínis stórhættulegt þegar að siðblindir peningamenn leika Guð og telja sig vita betur en læknar. Svo hættulegt að þeir hika ekki við að stofna lífi fjölda fólks í hættu fyrir eigin ágóða.

Umfjöllun NHS í Bretlandi, CNN í Bandaríkjunum og Entertainment Tonight

 

 

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!