KVENNABLAÐIÐ

Heimsins besta guacamole: Uppskrift

Guacamole/avocadomauk eða lárperumauk eins og það myndi útleggjast á okkar ylhýra er afskaplega gott með ýmsum mexíkóskum réttum eða tortilla flögum. Upprunalega kallaðist guacamole einfaldlega „avodadósósa“ og var einungis úr avocado og salti. Nú tíðkast að setja fleira í maukið, s.s. tómata, kóríander og fleira.
Allavega: Hér er besta uppskriftin sem við höfum rekist á hingað til! 
Auglýsing
Uppskrift: 
3 avocado, helminguð, kjarnhreinsuð og hýdd
1 límóna (lime) safinn
1/2 tsk sjávarsalt
1/2 tsk cayenne pipar
1/2 laukur (margir kjósa rauðlauk í staðinn) skorinn í litla bita
1/2 jalapeno, skorinn í litla bita (má sleppa)
2 stórir tómatar eða 4 kirsuberjatómatar, kjötið tekið úr og skornir í bita
1 msk hakkað kóríander
1 hvítlauksgeiri, hakkaður
Auglýsing
Aðferð: 
Settu avocado og límónusafann í stóra skál. Blandaðu vel. Síaðu ávöxtinn frá safanum og geymdu límónusafann. Stappaðu avocadoið ásamt saltinu og cayenne piparnum. Svo blandarðu lauknum saman við, tómötunum, kóríander og hvítlauk. Þá getur þú bætt límónusafanum aftur við. Best er að geyma maukið í stofuhita í klukkustund áður en það er borið fram.