KVENNABLAÐIÐ

Einstaklega safaríkar ofnbakaðar kjúklingabringur!

Auglýsing

Hráefni:

  • 4 meðalstórar kjúklingabringur
  • 1 tsk paprika
  • 1 oregano eða timjan, eða annað krydd að eigin vali
  • 1/4 tsk hvítlauksduft
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk pipar
  • 1 1/2 msk púðursykur
  • 2 msk olívuolía

Aðferð:

1. Stillið ofninn á 210 gráður. Berjið létt á kjúklingabringurnar með kjöthamri eða með hnefanum. Þetta gerir þær ennþá mýkri.

2. Blandið kryddunum og púðursykrinum saman í skál. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og raðið kjúklingabringunum á plötuna. Penslið eða nuddið olíunni á kjúklinginn og kryddið. Snúið honum við og gerið það sama á hinni hliðinni.

3. Bakið kjúklinginn í 18 mínútur eða þar til hann verður gylltur( ef þú ert með kjötmæli þá á innri hitinn að vera 75 gráður ) Púðursykurinn gerir kjúklinginn gylltan og smá karamellu-kenndan en ekki of sætann. Berið kjúklinginn fram með ykkar uppáhalds meðlæti.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!