KVENNABLAÐIÐ

Guðni forseti sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynferðislegrar áreitni starfsmanns hans

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendir frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Fréttablaðsins, um að starfsmaður hans hafi gerst uppvís að ósæmilegu athæfi.

Auglýsing

Yfirlýsing forseta Íslands, 4. október 2019:

Vegna fréttar á vef Fréttablaðsins í dag um vinnu- og námsferð starfsmanna embættis forseta Íslands til Parísar 13.-16. september síðastliðinn skal þetta tekið fram: Í ferðinni varð einn starfsmaður embættisins sekur um óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferðahópnum, kynferðislega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt. Eftir heimkomu greip embættið til viðeigandi aðgerða, meðal annars með hliðsjón af stefnu og áætlun Stjórnarráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi.

Auglýsing

Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfsmaðurinn fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu. Auk þess var starfsmanninum gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. Í framhaldinu hefur viðkomandi starfsmaður beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sérsérfræðiaðstoðar. Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!