KVENNABLAÐIÐ

Lögregla lýsir eftir Önnu Helgu Pétursdóttur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Önnu Helgu Pétursdóttur, 63 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar í nágrenni Holtagarða í Reykjavík í gærmorgun. Anna Helga er grannvaxin, 165 sm á hæð og með stutt, grátt hár. Hún var klædd í dökkbláar, víðar gallabuxur, brúna gönguskó og grænan/brúnan jakka. Anna Helga, sem notar gleraugu, gæti verið með loðhúfu á höfði.

Auglýsing

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Önnu Helgu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112, en upplýsingum fá einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!