KVENNABLAÐIÐ

Sonur Ingu Lóu er „á síðustu sentimetrunum“ vegna fíkniefnaneyslu

Læknar hafa tjáð Ingu Lóu Birgisdóttur að falli sonur hennar „einu sinni enn“ sé hann farinn. Hann er langt leiddur fíkill og segist Inga ekki geta gert annað en gefið út neyðarkall þar sem enginn læknir vill sinna honum lengur.

Inga Lóa skrifar:

Nú er vakning!
Vakning að fræða unga einstaklinga um þá miklu hættu sem af fíkniefnefnum stafar.
Og er það eitt og sér af hinu góða.
En alvaran er mikil ef einstaklingur stígur þessi skref í átt að helvíti. Þetta helvíti spyr ekki um stétt eða stöðu. Þetta er sjúkdómur sem þú veist ekki hvort þú hefur fyrr en þú prófar.
Þetta er rússnesk rúlletta sem allt of margir, alltof ungir, einstaklingar eru að spila á hverjum einasta degi. Og deyja laangt fyrir aldur fram.
Við erum að horfa á heila kynslóð ungs fólks þurrkast út.
Ég skrifa þetta hér því ég á einn slíkan.

Auglýsing
Sonur minn er 27 ára langt leiddur fíkill. Sem nú nýverið vaknaði til lífsins eftir rúmlega fjögurra sólarhringa dá vegna ofneyslu. Og það tók rúma tvo sólarhringa að vekja hann og ná honum hingað til baka aftur (hann var hálfur hinum megin, þó það væri búið að vekja hann)
Þetta er ekki að gerast í fyrsta skiptið, hann hefur verið að lenda í flogi og hjartastoppi/flökti síðustu vikur/mánuði í neysluni, en þetta er í fyrsta skipti svona alvarlegt.

Hann var með samfallið lunga og samfallinn lungnavef mikla stækkun á hjartavöðva og svæsna lungnabólgu.

Hann var illa haldinn á spítala í tíu daga eftir þetta síðasta áfall. (Hefði klárlega þurft að vera lengur) Og er nú búinn að fá „lokadóminn.“
Læknir á stofugangi sagði: „Ef hann fellur einu sinni enn þá er hann farinn.“ Hann er með hjarta á við áttræðan mann og nýru og lungu ekki að vinna sitt verk að fullu.

Sonur Ingu á spítalanum
Sonur Ingu á spítalanum


Læknir hefur líka sagt mér að eftir svona lagað sé eðlilegt að viðkomandi verði brjálaður þegar hann loks kemur til sjálfs síns. Sem gerðist einmitt í þessu tilfelli. Hann var í kjölfarið af því sviftur tímabundið [sjálfræði, innsk. blm.] til að vernda hann (72klst) og vistaður á geðdeild. Þar fékk hann ekki súrefnisaðstoð eins og hann hefði samt þurft. Þessari vernd var svo aflétt eftir 24 klst. „Af því hann vildi fara.“ Hvaða bull er það? Þarna var ég og öryggisvörður stödd. Við litum á hvort annað og hristum hausinn. Ástandið var það slæmt að aðrir 72 tímar í vernd hefðu skipt miklu máli uppá bata.

Hann féll svo aftur á föstudegi eftir útskrift. s.s. hálfum mánuði eftir síðasta overdose.

Auglýsing

Síðan þá höfum við ítrekað farið uppá bráðamóttöku. En alltaf send út aftur. Lyfjalaus, úrræðalaus og hjálparlaus. Læknir ráðlagði meira að segja að kaupa lyf á svörtum markaði og reyna að minnka við sig sjálfur. EINMITT!!!!
Hann hefur viljann núna. Og er skíthræddur (eðlilega).

Hann er að reyna að trappa sig sjálfur niður af oxycontin sem hann féll í . En hann er að gera það of hratt og getur það einnig verið hættulegt að sögn læknis. En samt er engin hjálp á næsta leiti. Hann er heimilislaus, en eftir síðustu sjúkrahúsferð hef ég og frænka hans reynt að skipta með okkur vöktum og „passað“ hann eins og lítið barn. Hann er hræddur og viljugur, en engar dyr standa opnar. Hann fær ekki innlögn til að aðstoða hann að trappa sig rólega niður á þessu lyfi og öðrum lyfjum sem hann hefur notað til að halda sér í jafnvægi, í „vernduðu“ umhverfi.


Við höfum gripið til þess ráðs að kaupa lyf á svörtum markaði. En það er dýrt og ekki hægt til lengdar. Að hætta snögglega á þeim lyfjum sem hann hefur verið á, getur valdið alvarlegum krampa og flogaköstum sem leitt geta til dauða.

Skilyrði fyrir innlögnum á meðferðarheimili hér er að hætta á þessum lyfjum. Sem er samt ekki ráðlagt af lækni að hann geri einn og sér og sjálfur. Og ekki er ég eða frænka hanns meðferðaraðilar. Og höfum því síður aðgang að lyfjum til að vinna það verk. Það tekur líka langan tíma að trappa svona lyf niður. Talað er um jafnvel eitt ár eftir svona langa notkun. En það er ekki í boði á afeitrunarstöðvum hér á landi.

Hann er mjög ofvirkur og hvatvís, á til að detta í þunglyndi og sjálfsvígshugsanir og -tilraunir.

Það er ekki alltaf hægt að segja að hann sé svo erfiður einstaklingur. HANN ÞARF HJÁLP! Hann er búinn að prófa allskonar lyf til að geta hætt á þessu. En alltaf sjálfur með sínum lækni. Þá hefur hann samt ekki þetta fasta utanumhald. Hann þarf klárlega að vera á lyfjum vegna sinnar ofvirkni og upp og niður sveiflna, en ekki hentar að svissa þeim bara út fyrir annað. (Ég er ekki sérfræðingur samt. En veit að þetta hefur verið reynt. Og endar þá í geðrofi).

Eins og staðan er núna er hann ekki á síðustu metrunum, heldur frekar sentrimetrunum. Við erum búnar að standa vaktina dag og nótt í tvær vikur. Hringja og ýta á alla takka sem okkur dettur í hug. Fara ítrekað uppá bráðamóttöku dag eftir dag. Nú er hann lyfjalaus. Og enginn læknir sem vill veita aðstoð. Þess vegna skrifa ég þetta bréf. Þetta er NEYÐARKALL!!!!!!!!!!!!
Á morgun, ef það verður ekki of seint hringi ég aftur á alla staði.
Með von í hjarta um skjóta og góða aðstoð.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!