KVENNABLAÐIÐ

Rihanna lifir lífinu með kærastanum Hassan á Ítalíu

Hönnuðurinn, söng- og leikkonan Rihanna er nú sem stendur að lifa draumalífinu á Amalfi stjörndinni á Ítaliu. Með í för er milljarðamæringurinn Hassan Jameel en þau hafa verið saman í þó nokkurn tíma. Ljósmyndarar náðu myndum af parinu í gær, en þau fóru í siglingu og fengu sér hádegisverð á Lo Scoglio í Nerano með fólki sem talið er vera fjölskyldan hans.

Auglýsing

RiRi og Jameel hafa verið par í nær tvö ár og náðust fyrst myndir af þeim á Spáni í júní 2017. Þá höfðu þau verið að hittast í leyni í nokkra mánuði: „Hún hefur farið dult með þetta, en þau hafa verið saman síðan í janúar. Þetta er alvöru samband. Þau hafa haldið þessu eingöngu fyrir sig og þeim er báðum alvara. Fjölskylda hans er mjög auðug og út af fyrir sig. Hún er búin að vera í Bretlandi oft að hitta hann.“

Auglýsing

Rihanna sagði við T magazine í síðasta mánuði að hún hafi flutt til London fyrr á árinu, og hún fái að vera í friði þar.

Þetta var mjög góð vika hjá Rihönnu. Forbes tilnefndi hana sem ríkustu tónlistarkonu veraldar og nýja Fenti línan hennar var frumsýnd.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!