KVENNABLAÐIÐ

Fatima Ali úr þáttunum Top Chef látin, aðeins 29 ára að aldri

Fatima Ali er látin, 29 ára að aldri, en hún var pakistönsk stjarna og komst langt í matreiðsluþáttunum Top Chef. Lést hún föstudaginn 25. janúar en hún hafði háð baráttu við krabbamein.

Auglýsing

Ali hafði verið greind með sjaldgæfa tegund krabbameins, kallað sarkmein Ewings, árið 2017. Snemma árs 2018 var talið að meinið væri horfið en í september sama ár fékk hún þær ömurlegu fréttir að það væri komið aftur. Henni var gefið ár.

Fatima í þætti Ellen fyrir tveimur mánuðum síðan:

Auglýsing

Aliza Raza deildi hinum skelfilegu fréttum á Instagram:

„Fatima Ali (Fati kokkur!) og hugrökk barátta hennar við krabbann lauk í dag. Hún var þekkt fyrir að hafa unnið Top Chef, en þó heldur vegna frábærs persónuleika og bráðfyndinnar hnyttni. Þessi ungi kokkur var innblástur margra. Viljið þið biðja fyrir henni og ástvinum hennar. Megi hún hvíla í krafti💔 #cheffati #f**kcancer“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!