KVENNABLAÐIÐ

Níu einkenni hjartaáfalls hjá konum sem eiga sér stað mánuði fyrir áfall

Vissir þú að brjóstverkur er ekki eitt algengasta einkenni hjartaáfalls hjá konum? Á síðustu áratugum hafa vísindamenn áttað sig á að einkenni hjartaáfalls hjá konum eru ólík einkennum hjá körlum. Árið 2013 var gerð rannsókn á 515 konum sem höfðu fengið hjartaáfall. Algengustu verkirnir voru ekki brjóstverkur. Nærri því 80% kvennanna höfðu upplifað að minnsta kosti eitt af eftirfarandi einkennum:

Auglýsing

Óvenjuleg þreyta sem varir í nokkra daga eða skyndileg, mikil þreyta

Svefntruflanir

Kvíði

Svimi

Að vera andstutt

Meltingar- eða vindverkir

Verkur í efra baki, öxl eða hálsi

Verkur í kjálka eða sem leiðir upp í kjálka

Þrýstingur eða verkur í miðju brjósti sem getur leitt niður í hendi

Könnun sem gerð var árið 2012 af tímaritinu Circulation leiddi í ljós að aðeins 65% kvenna sögðust hringja í neyðarlínuna (112) ef þær teldu sig vera að fá hjartaáfall. Þrátt fyrir að þú sért ekki viss – farðu á bráðamóttökuna strax! Hvað er eðlilegur verkur og hvað er óeðlilegur verkur fyrir þig? Ef þú hefur ekki upplifað einkennin áður, ekki hika áður en þú leitar þér hjálpar. Ef þú ert ekki sátt við mat læknisins, fáðu álit annars.

Auglýsing

Hjartaáfall kvenna yfir fimmtugt

Konur upplifa miklar líkamlegar breytingar í kringum fimmtugsaldurinn sem er aldur tíðahvarfa. Estrógenmagnið minnkar og er það hormón sem hjálpar til við að halda hjartanu heilbrigðu. Eftir að konur fara í gegnum tíðahvörf eru auknar líkur á hjartaáfalli.

Því miður er það svo að konur sem fá hjartaáfall eru líklegri til að deyja en karlmenn. Þess vegna er enn mikilvægara að kynna sér málið og einkennin til að vera meðvituð um hjartaheilsuna eftir tíðahvörf.

Einkenni sem einnig ber að hafa í huga hjá konum yfir fimmtugt:

Mikill brjóstverkur

Verkir eða óþægindi í annari eða báðum höndum, baki, hálsi, kjálka eða maga

Hraður eða óreglulegur hjartsláttur

Aukin svitamyndun

Dulið hjartaáfall

Dulið hjartaáfall er eins og hjartaáfall, nema hvað það á sér stað án einkenna. Með öðrum orðum: Þú gætir ekki áttað þig á að þú hafir fengið hjartaáfall. Rannsóknarstofnun Duke University Medical Center í Bandaríkjunum áætlar að um 200.000 Bandaríkjamenn fái hjartaáfall á hverju ári án þess að gera sér grein fyrir því. Því miður er það þó svo að áföllin geta valdið hjartaskaða og auka áhættuna á hjartaáföllum í framtíðinni. Þessi duldu áföll eru algengari meðal fólks með sykursýki og sem hefur sögu af hjartaáföllum.

Einkenni þessara áfalla:

Mild óþægindi í brjósti, höndum eða kjálka sem fara eftir hvíld

Að vera andstuttur og þreytast auðveldlega

Svefntruflanir og þreyta

Magaverkur og brjóstsviði

Rök húð

Ekki verður nægilega ítrekað að fara í reglulega læknisskoðun og hreyfa sig nóg. Það eykur bæði lífslíkur og vellíðan.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!