KVENNABLAÐIÐ

Djúsí Vegan BLT samloka og möguleiki á að vinna Vitamix blandara!

Þá er seinni vikan í 14 daga sykurlausu áskoruninni hafin! Nú er síðasta tækifærið að skrá sig og fá uppskriftir, innkaupalista og ráð að tækla sykurpúkann við skráningu, alveg ókeypis!

Þátttaka í áskorun hefur aldrei verið eins góð og veglegir leikir í gangi sem þú vilt ekki missa af, þ.a.m Vitamix blandari sem verður gefin einum heppnum næstkomandi mánudag! Vertu með í áskorun með því að skrá þig hér og áttu möguleika á að vinna inn Vitamix blandara og meira til!

Auglýsing

Uppskriftin hér að neðan er djúsí vegan BLT samloka úr áskorun!  Einföld og fljótleg loka sem allir ættu að prófa.

bakon3

Djúsí Vegan BLT samloka


Kryddað eggaldin:

1 eggaldin, skorið í strimla

3 hvítlaukar saxaðir

2 msk olífuolía

1 sítróna kreist

2 tsk papríka

2 tsk kóríander

1 tsk chiliduft

salt og pipar

Auglýsing

Sett saman:

lífrænt súrdeigsbrauð

Daiya ostur í sneiðum eða vegan smurostur  (geitaost eða mozzarella ost ef þið kjósið í staðinn)

fersk basilíka

Rauðlaukur

1 tómatur

klettasalat

1.  Skerið eggaldin í strimla. Hrærið saman í kryddblönduna og veltið eggaldininu uppúr því.

2.  Grillið eða steikið á pönnu í 5-7 mín eða þar til eggaldinið er orðið mjúkt. (Fyrir enn fljótlegri samloku má sleppa eggaldin)

3.  Grillið súrdeigsbrauðið eða ristið örlítið.

4.  Smyrjið tvær súrdeigsbrauðsneiðar með osti. Raðið á aðra sneiðina: ferskri basilíku, tómatsneiðum, rauðlauk, grilluðu eggaldin, klettasalati og lokið samlokunni.

5.  Best er að grilla samlokuna örlítið í samlokugrilli en samlokan er einnig góð köld. Bæði er betra.

Fáðu sykurlausar uppskriftir, innkaupalista og ráð hér með ókeypis skráningu í 14 daga áskorun!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!